
Gluggað er í gömul bréf, ferðast með strandferðaskipum og kynjamyndir Austfjarðaþokunnar skoðaðar. Þá segir Vilhjálmur frá kynnum sínum af Ólafi Thors, sem talaði eins vel um framsóknardindlana og hann þorði. Einnig segir hér af kynnum höfundar af Eiríki Þorsteinssyni alþingismanni og uppátækjum þeirra, sem og fleirum. Og hvernig fór með hvolpinn sem Vilhjálmur neitaði að flytja suður. (Heimild: Bókatíðindi)