Í Píslarvottum nútímans er fjallað um sögu stjórnmála og trúarbragða í Íran og Írak, og með því að rekja og flétta saman sögu landanna tveggja og reynslu er þess freistað að varpa ljósi á ástandið eins og það blasir við nú. Höfundur skyggnist að baki fyrirsagna fjölmiðlanna og margt óvænt og forvitnilegt kemur í ljós. Hann rökstyður til dæmis að trúin hafi ekki verið miðlægur þáttur í stjórnmálum þessara landa lengst af 20. öldinni, en margt bendi til að vægi hennar eigi eftir að aukast mjög á næstu árum og áratugum. Bent er á að hugmyndafræði svokallaðra íslamista sæki á og meðal annars rakið hvernig klerkaveldið í Íran vegsamaði píslarvættisdauða í stríðinu við Írak og lagði þannig grunninn að sjálfsmorðsárásum íslamista. Einnig er lýst erlendum afskiptum af málefnum Íraks og Írans og hvernig sú beiska reynsla hefur mótað tortryggni íbúa Mið-Austurlanda í garð Vesturlanda. Píslarvottar nútímans er bók sem sætir miklum tíðindum, enda er hér skrifað af mikilli þekkingu á aðgengilegan hátt um málefni sem brenna á allri heimsbyggðinni. (Heimild: Bókatíðindi)