
Barnadeildin í Úlfarsárdal
Í Úlfarsárdal er falleg og notaleg barnadeild þar sem öll börn eru velkomin. Fyrir yngstu börnin er skemmtilegast að leika í Krílahorninu en í aðalrýminu finna eldri börnin eitthvað við sitt hæfi. Ungfó er einnig í aðalrými safnsins. Ef ykkur finnst eitthvað vanta í safnkostinn, látið okkur þá endilega vita með því að senda okkur innkaupatillögu.
Á safninu er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir fjölskyldur og safnkynningar fyrir hópa.
Aðstöðu til að skipta á ungabörnum má finna bæði á snyrtingu á efri og neðri hæð.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnhildur Sigurhansdóttir, sérfræðingur
gunnhildur.sigurhansdottir@reykjavik.is | 411 6270