Kofinn í barnadeildinni á Bókasafnunu í Árbæ
Barnadeildin í Árbæ

Barnadeildin í Árbæ

Í barnadeildinni í Árbæ er að finna úrval af bókum, á íslensku og ensku, ásamt DVD myndum fyrir börn á öllum aldri. Einnig er hægt að fá lánuð spil til að spila á staðnum eða prófa heima með fjölskyldunni eða vinum, og stundum drögum við fram litakassana.

Barnasvæðið er með sófum, pullum og leynikofa þar sem tilvalið er fyrir yngstu lesendurna að skoða bækur og leika sér. Púsl og bangsar gera svæðið að skemmtilegum stað fyrir börnin að njóta sín og búningarekkinn er ávallt vinsæll.

Svo er að sjálfsögðu alltaf heitt á könnunni fyrir fullorðna fólkið og úrval bóka og tímarita sem þau geta kynnt sér um leið!

Category
UpdatedMonday February 26th 2024, 13:09