Spjöllum með hreim

THE PROGRAM IN ENGLISH HERE

Borgarbókasafnið býður uppá fjölbreyttar samverustundir, Spjöllum með hreim, fyrir þau sem vilja æfa sig að tala íslensku í vinalegu umhverfi. Viðburðirnir, sem haldnir eru vikulega, eru frábær leið fyrir þau sem vilja æfa sig í að tala íslensku í vinalegu umhverfi og kynnast í leiðinni öðrum sem eru líka að læra.  Leiðbeinendur hafa mikla reynslu í að kenna íslensku sem annað mál. Allir viðburðirnir eru ókeypis og engin skráning, bara mæta! 

Spjöllum með hreim skiptist í fjórar tegundir viðburða sem gestir geta valið úr eftir áhugasviði og kennsluaðferð. Kíktu á dagskrána hér fyrir neðan og sjáðu hvað hentar þér best!

Lesum og spjöllumSplunkunýr bókaklúbbur þar sem við lesum saman bók og hittumst einu sinni í mánuði til að ræða hana, spyrja kennarann spurninga og segja frá upplifun okkar. Bókaklúbburinn er hugsaður fyrir þau sem eru á stigi B1-B2 í íslensku.
Við byrjum á að lesa bókina Árstíðir eftir Karítas Hrund Pálsdóttur. Þau sem eiga bókasafnskort geta fengið bókina lánaða hjá safninu.

Borgarbókasafninu Grófinni 
Laugardagurinn 16. september  | 11:30-13:30
Laugardagurinn 14. október | 11:30-13:30
Laugardagurinn 11. nóvember | 11:30-13:30
Laugardagurinn 9. desember | 11:30-13:30
 

Föndrum og spjöllum Finnst þér gott að dunda við eitthvað á meðan þú spjallar? Gengur þér betur að læra þegar þú vinnur að einhverju í höndunum, til dæmis föndrar eitthvað fínt?
Komdu og æfðu þig að tala íslensku í notalegu og afslöppuðu umhverfi. Við föndrum, fáum okkur kaffi/te og spjöllum. Viðburðurinn er hugsaður fyrir byrjendur í íslensku en er opinn öllum. 

Borgarbókasafninu Grófinni 
Laugardagurinn 30. september  | 11:30-13:30
Laugardagurinn 28. október | 11:30-13:30
Laugardagurinn 25. nóvember | 11:30-13:30


Skoðum og spjöllum Langar þig að rölta um miðborg Reykjavíkur og skoða skemmtilegar sýningar á fjölbreyttum menningarstofnunum á meðan þú æfir þig að spjalla á íslensku? Við hittumst einu sinni í mánuði og kynnumst borginni betur. Leiðsagnirnar fara fram á íslensku en reyndur kennari fylgir hópnum og aðstoðar ef á þarf að halda.

Borgarbókasafnið Grófnni 
Laugardagurinn 23. september | 11:30-13:30 
Laugardagurinn 21. október | 11:30-13:30
Laugardagurinn 18. nóvember  | 11:30-13:30
Laugardagurinn 16. desember | 11:30 - 13:30 


Spilum og spjöllumVið spjöllum, spilum borðspil, leysum krossgátur og höfum gaman saman. Við eigum spil fyrir öll getustig og kennararnir aðstoða ef á þarf að halda og hjálpa til við að finna spil sem hentar. Öll velkomin, einnig þau sem eru að byrja að læra íslensku! 

Borgarbókasafnið Grófinni 
Laugardagurinn 9. september | kl. 11:30 - 13:30 
Laugardagurinn 7. október | kl. 11:30 - 13:30 
Laugardagurinn 4. nóvember | kl. 11:30 - 13:30 
Laugardagurinn 2. desember | kl. 11:30 - 13:30 

Borgarbókasafnið Spönginni 
Laugardagurinn 23. september | kl. 11:30 - 13:30 
Laugardagurinn 21. október | kl. 11:30 - 13:30 
Laugardagurinn 18. nóvember | kl. 11:30 - 13:30 
Laugardagurinn 16. desember | kl. 11:30 - 13:30 

Borgarbókasafnið Kringlunni
Fimmtudagurinn 14. september | kl. 10:30 - 12:30 
Fimmtudagurinn 12. október | kl. 10:30 - 12:30 
Fimmtudagurinn 9. nóvember | kl. 10:30 - 12:30 
Fimmtudagurinn 7. desember | kl. 10:30 - 12:30 

Frábærir og reynslumiklir leiðbeinendur aðstoða þátttakendur. HÉR er hægt að kynnast þeim. 

Saga Jen Zhang og Garance Merholz mæta reglulega á Spilum og spjöllum og segja það frábæra leið til að læra tungumálið og kynnast nýju fólki. Hér má lesa viðtal við Sögu og hér má lesa viðtal við Garance þar sem hvor um sig deilir reynslunni af viðburðunum og gleðinni. 

Viðburðaröðin er styrkt af félags-og atvinnumálaráðuneytinu og Landsbankanum.

Skjaldamerki félagsmálaráðuneytisins

Landsbankinn logo
Nánari upplýsingar veita:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur í fjölmenningarmálum
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is 

Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is