A collage of several paper roses in various colors.

Information about the event

Time
15:30 - 17:30
Price
Free
Target
Everyone
Language
íslenska, english
Arts & Crafts

Tilbúningur | Pappírsrósir

Tuesday October 14th 2025

Lærðu að búa til þessar gullfallegu pappírsrósir!

Mættu á Tilbúning og lærðu að föndra þessar fallegu rósir úr pappír. Það er auðveldara en það lítur út fyrir að vera! Þær geta verið úr gamalli bók, vandlega skreyttar eða hvernig sem er. Þú ræður!

Viðburðurinn er viðeigandi fyrir fólk á öllum aldri, og við hvetjum fullorðið fólk sérstaklega til að leyfa sér að taka þátt og vera skapandi, óháð „listrænum hæfileikum“. Áhöld og efniviður verða á staðnum, en þér er velkomið að taka pennaveskið með! Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.

Tilbúningur fer fram á Borgarbókasafninu í Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar, og á Borgarbókasafninu í Spönginni á fyrsta miðvikudegi hvers mánaðar.

Viðburðurinn á facebook.

Nánari upplýsingar veitir:
Védís Huldudóttir | Sérfræðingur
vedis.huldudottir@reykjavik.is | 411-6244 ✆