Salaleiga í Gerðubergi
Viltu bóka fundarherbergi eða sal hjá okkur?
Í húsinu er góð aðstaða til að halda fundi, námskeið og ráðstefnur. Kaffihúsið Cocina Rodriguez býður upp á góðar veitingar og er frábær viðkomustaður jafnt fyrir íbúa og gesti sem eiga leið um Breiðholtið.
Lilja Rut Jónsdóttir, deildarfulltrúi, annast bókanir í síma 411 6186 eða netfangi lilja.rut.jonsdottir@reykjavik.is.
Skrifstofan er opin mánudaga - fimmtudaga kl. 8:00-16:00 og föstudaga 8:00-12:00
Veitingar
Í húsinu er starfrækt kaffihúsið Cocina Rodrígues. Reksturinn er í höndum Evelyn Rodríguez og sér hún um veitingar fyrir viðskiptavini hússins.
Veitingapantanir og nánari upplýsingar:
Netfang: cocinakaffi111@gmail.com
S: 771 1479 / 411 6181
Sjá yfirlit yfir aðstöðu í menningarhúsum Borgarbókasafnsins.
Salir og fundarherbergi
BERG (EKKI TIL ÚTLEIGU V. FRAMKVÆMDA)
Salurinn hentar vel fyrir ráðstefnur, námskeið, fundi, leiksýningar, tónleika og ýmis konar viðburðahald.
Stærð: 135 m2 | 80-100 manns við borð - fyrirlestrar-uppstilling 120 manns.
Staðsetning í húsi: 2. hæð til móts við bókasafn.
Tæknibúnaður: Fartölva, skjávarpi, tjald, þráðlaust net, hljóðkerfi (mixer), þráðlaus hljóðnemi, flygill, hækkanlegt svið, ræðupúlt.
Verð: 1/2 dagur kr 31.650
Heill dagur kr. 50.220
Laugardagur kr. 65.410
BAKKI (EKKI TIL ÚTLEIGU VEGNA FRAMKVÆMDA)
Salurinn hentar vel fyrir námskeið, smiðjur og fundi.
Stærð: 32 manns við borð
Tæknibúnaður: Fartölva, skjávarpi, tjald, þráðlaust net, stór tússtafla á vegg, bluetooth hátalarar.
Verð: 1/2 dagur kr. 25.850
Heill dagur kr. 40.090
Laugardagur kr. 47.270
FELL (EKKI TIL ÚTLEIGU V. FRAMKVÆMDA)
Salurinn hentar vel fyrir fyrir leikfimi, dans, leiklist og smiðjur.
Stærð: 69m2 | Speglasalur 25 manns
Staðsetning í húsi: Á 1. hæð, til vinstri þegar gengið er inn
Tæknibúnaður: Speglar á einum vegg, bluetooth hátalari, jóga dýnur.
Verð: 1/2 dagur kr. 11.400
Heill dagur kr. 17.830
Laugardagur kr. 17.830
HÓLAR (EKKI TIL ÚTLEIGU V. FRAMKVÆMDA)
Salurinn hentar vel fyrir námskeið og fundi.
Stærð: 20m2 | 14 manns við langborð
Staðsetning í húsi: Á 1. hæð, til vinstri þegar gengið er inn.
Tæknibúnaður: Tölva, sjónvarp á vegg, þráðlaust net, flettitafla.
Verð: 1/2 dagur kr. 22.580
Heill dagur kr. 30.173
Laugardagur kr. 34.820
*Gjaldskrá frá 1.1.2024