BORGARBÓKASAFNIÐ

Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði.
Sýningin ÉG ÞORI! ÉG GET! ÉG VIL! Var sett upp á Borgarbókasafninu Grófinni í tilefni af að 50 ár eru liðin frá fyrsta Kvennafrídeginum á Íslandi. Sýningin stóð frá 4. - 15. október 2026
Á sýningunni mátti sjá frummyndir og skissur úr samnefndri bók Lindu Ólafsdóttur sem gefin var út 2023 og er til á þremur tungumálum; íslensku, ensku og þýsku. Myndirnar í bókinni hafa einnig verið til sýnis í New York og á bókahátíðinni í Bologna, en bókin hefur hlotið fjölda viðurkenninga og m.a. tilnefnd til þýsku barnabókaverðlaunanna.
Á sýningartímanum var boðið upp á tvær fjölskyldusmiðjur þar sem Linda las upp úr bók sinni og stýrði svo smiðju þar sem börnin bjuggu til sín eigin mótmælaspjöld til að koma skoðun sinni á framfæri og krefjast jafnréttis og friðar í heiminum.
Á Borgarbókasafninu Grófinni má enn skoða hluta af sýningunni en myndefni bókarinnar prýðir veggi og súlur á svokölluðu Bókatorgi á jarðhæðinni.

Linda Ólafsdóttir er einn þekktasti rit- og myndhöfundur landsins, en hún hefur myndlýst fjölda bóka og má þar meðal annars nefna eftirfarandi bækur; Íslandsbók barnanna, Reykjavík barnanna, Blíðfinnur, Draumaþjófurinn og Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum. Linda heldur reglulega námskeið, smiðjur og vinnustofur og gefur út bækur sínar bæði innanlands og utan. Fyrir verk sín hefur Linda hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna.
Smellið hér til að skoða heimasíðu Lindu Ólafsdóttur.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6145