BORGARBÓKASAFNIÐ

Gunnhildur Sigurhansdóttir, verkefnastjóri á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal, er áhugamanneskja um góð borðspil og veit upp á hár hvaða spil verður tekið með í bústaðinn í sumar með fjölskyldunni.
„Ég ætla að spila Ticket to ride, Days of Wonder. Spilið er einskonar ferðalag um Norður-Ameríku þar sem þátttakendur keppast við að tengja saman borgir með því að leggja lestar á spilaborðið og safna þannig stigum fyrir ákveðnar lestarleiðir. Þetta spil er frábær leið til að ferðast um heimsálfurnar í huganum.“
Hvað vakti áhuga þinn á Ticket to ride?
„Við fjölskyldan eigum Evrópuútgáfuna af Ticket to ride og það hefur verið hefð hjá okkur að spila það þegar við förum í bústað á sumrin. Börnin mín elska Ticket to ride og mér fannst kominn tími til að prófa nýja heimsálfu. Það er svo frábært að geta fengið spilið lánað á næsta bókasafni í stað þess að kaupa nýtt.“
Spilarðu öðruvísi spil á sumrin en á veturna?
„Að sumu leyti spilum við ólík spil á sumrin og veturna. Ticket to ride hentar vel allt árið en fyrir bílferðir og útilegur finnst okkur betra að taka með einfaldari og minni spil eins og Five Crowns, Skipbo, Timeline og fleiri. Á veturna sækjum við meira í spurningaspil eins og Trivial Pursuit, Fjölskylduspilið, Smell og stærri spil sem taka meira borðpláss og lengri tíma.“
Áttu uppáhalds spil?
„Ég er frekar jarðbundin manneskja sem elskar almennan fróðleik og Trivial Pursuit hefur verið mitt uppáhald í mörg mörg ár, sérstaklega útgáfan frá 1986. Spil sem auka þekkingu á t.d. landafræði, tónlist, stjórnmálum og menningu eru mjög vinsæl á mínu heimili, sérstaklega með hækkandi aldri barnanna. Spil eru svo frábær leið til að fá unglingana - og okkur fullorðna fólkið - úr símunum og eiga saman gæðastundir í fríinu.“