BORGARBÓKASAFNIÐ

Skáldsagan Dyngja (e. Boudoir) eftir Sigrúnu Pálsdóttur er meðal verka sem eru tilnefnd til Dublin-bókmenntaverðlaunanna í ár.
Skáldsagan kom út á íslensku árið 2021 og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna sama ár. Dyngja kom út á ensku vorið 2026 í þýðingu Lytton Smith. Sigrún Pálsdóttir hefur hlotið ýmsar tilnefningar og verðlaun fyrir verk sín, þar á meðal hlaut hún íslensku bókmenntaverðlaunin 2026 fyrir Bláa pardusinn: Hljóbók.
71 skáldverk frá 41 landi tilnefnd til verðlaunanna í ár. 90 bókasöfn víðsvegar um heiminn stóðu að tilnefningunum, þar á meðal Borgarbókasafn Reykjavíkur. Á meðal tilnefndra verka má meðal annarra finna 22 frumraunir höfunda og 30 skáldverk þýdd úr 21 tungumáli, þeirra á meðal pólsku, búlgörsku, malasísku og íslensku.
Frekari upplýsingar um tilnefnd verk og höfunda árið 2027 má finna hér.
Langlisti tilnefndra bóka verður birtur 16. febrúar 2027, stuttlistinn verður í kjölfarið kynntur 7. apríl og vinningshafinn verður tilkynntur 20. maí 2027. Það verður í þrítugsta og annað skiptið sem verðlaunin verða veitt. Verðlaunin verða afhent á Alþjóðlegu bókmenntahátíðinni í Dublin á Írlandi.
Verðlaunin hlýtur höfundur fyrir verk sem skrifað hefur verið á ensku eða þýtt yfir á ensku og nema verðlaunin 100.000 evrum eða tæplega 15 milljónum króna.
