
Breski náttúrufræðingurinn og fjölmiðlamaðurinn David Attenborough fagnaði 100 ára þann 8. maí. Hann sýndi ungur mikinn áhuga á náttúrufræði, safnaði steingervingum í æsku og hjólaði einn um Vatnahéruð England í leit að steingervingum aðeins 13 ára gamall.
Eftir David Attenborough liggja fjöldinn allur af stórmerkum fræðslu- og náttúrulífsþáttum auk sjónvarpsmynda og bóka um margvísleg fyrirbæri náttúrunnar. Við óskum Attenborough til hamingju með öldina!
Borgarbókasafnið á fjölda bóka og mynddiska eftir David Attenborough, hér fyrir neðan má sjá úrval úr safni Borgarbókasafns auk nýlegrar barnabókar um ævi og störf David Attenborough.