BORGARBÓKASAFNIÐ

Er hægt að upplifa náttúrufegurð innan borgarmarka?
Borgin og blómin er verkefni sem unnið var í skapandi sumarstörfum Reykjavíkurborgar sumarið 2026 og leitast við að svara þeirri spurningu. Verkin eru unnin útfrá ljósmyndum sem voru teknar á tímabilinu 25. maí til 25. ágúst af mannvirkjum og gróðri innan Reykjavíkurborgar.
Myndirnar eru framkallaðar með cyanotype aðferð, þar sem að ljósnæmt efni gerir myndinina sýnilega með geislum sólarinnar. Myndefni af mannvirkjum og gróðri er skeytt saman og þannig myndast súrrealísk draumaveröld þar sem að hið manngerða og hið náttúrulega blandast saman. Þannig er leitast við að rannsaka náttúrufegurð innan borgarmarka og samspilið milli manns og náttúru. Borgin gjörbreytir því umhverfi sem að hún er byggð í og að sama skapi aðlagar náttúran sig af mannvirkjunum.
Una Erlín er nýútskrifuð úr BA námi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Hún hefur mikin áhuga á náttúru og útivist og eyðir miklum tíma á grænum svæðum borgarinnar.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100