BORGARBÓKASAFNIÐ
Undanfarið hafa óprúttnir aðilar sent tölvupósta í nafni starfsmanns Borgarbókasafnsins á félagsmenn Rithöfundasambandsins með það fyrir augum að hafa af þeim fé.
Borgarbókasafnið vill koma því skýrt á framfæri að póstarnir eru ekki sendir af viðkomandi starfsmanni og tengjast safninu ekki á nokkurn hátt. Starfsfólk sendi aldrei frá sér tölvupósta nema úr netfangi með endingunni @reykjavik.is og fer aldrei fram á greiðslu frá rithöfundum eða öðrum aðilum vegna þátttöku í verkefnum á vegum safnsins.
Borgarbókasafnið varar við þessum póstum.