BORGARBÓKASAFNIÐ

Líkt og síðustu ár heldur Borgarbókasafnið utan um barna- og ungmennadagskrá á Bókahátíð í Hörpu sem haldin verður dagana 21. og 22. nóvember.
Í ár munu um 50 barna- og ungmennabókahöfundar koma fram á Bókahátíðinni og kynna glænýjar bækur í veglegri dagskrá. Barnabækur verða kynntar frá kl. 12 til 16 bæði laugardag og sunnudag. Sérstök ungmennabókadagskrá verður kl. 16 til 17 á laugardeginum.
Það er Félag íslenskra bókaútgefenda sem hefur veg og vanda af hátíðinni.
Aðgangur ókeypis, heitt á könnunni og öll velkomin.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Hörpu um helgina!
Hér má finna heildardagskrá Bókahátíðar í Hörpu 2026: https://www.fibut.is/index.php/bokahatidh-i-hoerpu
Bókahátíðin í Hörpu á Facebook: https://www.facebook.com/profile.php?id=61570238341942