BORGARBÓKASAFNIÐ

„Það er mjög ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu frá VIRK og auðvitað mikill heiður,“ segir Rut Ragnarsdóttir, deildarstjóri Borgarbókasafnsins Kringlunni.
Þorsteinn G. Hilmarsson, verkefnastjóri hjá Atvinnutengingu VIRK, leit við á Borgarbókasafninu Kringlunni og afhenti Rut blómvönd og viðurkenningarskjal til staðfestingar um útnefninguna.
Í rökstuðningi með henni segir m.a. að viðmót og viðhorf Borgarbókasafnsins Kringlunni gagnvart þjónustuþegum atvinnutengingar VIRK, sem í mörgum tilfellum búi við skerta starfsgetu, sé til fyrirmyndar og hafi Atvinnutenging VIRK viljað koma því á framfæri með þessum hætti.
„Framlag ykkar skiptir sköpum og þið sýnið samfélagslega ábyrgð í verki með því að bjóða einstaklingum í atvinnutengingu tækifæri til þess að leggja sitt af mörkum á vinnumarkaði,“ segir að auki í rökstuðningnum. Rannsóknir sýni að þátttaka á vinnumarkaði sé mikilvæg fyrir bæði heilsu og velferð einstaklinga og því mikilvægt að auka þátttöku þessa hóps á vinnumarkaði.
Rut tekur undir það og segir viðurkenninguna falla vel að gildum Borgarbókasafnsins og stefnu.
„Þar sem við leggjum áherslu á að vera aðgengilegt og samfélagslegt rými, ekki aðeins fyrir gesti safnsins heldur einnig sem vinnustaður þar sem fjölbreyttur hópur fólks fær tækifæri til þátttöku og að vaxa í starfi,“ útskýrir hún.
„Fyrir okkur er mikilvægt að Borgarbókasafnið sé opinn og styðjandi vinnustaður þar sem fólk fær tækifæri til að taka þátt og leggja sitt af mörkum.“