Aðstaða og salaleiga í Spönginni
Í Spönginni er alltaf hægt að tylla sér niður, fá sér kaffi, kíkja í blöðin eða jafnvel eiga gott spjall og notalega stund með öðrum. Á safninu eru allskonar staðir til að vera á og dvelja, hvort sem er við vinnu, leik eða bara í slökun með góða bók við höndina.
Hjá okkur er líka hægt að hanga í allskonar sófum eða njóta þess að slaka á í hengirúminu. Það er nóg pláss fyrir börn og fjölskyldur til að njóta samveru á safninu. Oft er líf og fjör þegar unga kynslóðin fjölmennir á safnið, en það er líka notalegt og rólegt að setjast niður og lesa saman.
Þarfu að læra í ró og friði?
Á efri hæðinni er að finna tvö les- og hópavinnuherbergi sem hægt er að bóka án endurgjalds.
Innra herbergi: stærð: 19 fm2 | 10-15 manns við borð. Gólfflötur: 320 x 605 cm. Lofthæð: 330 cm. Skjár á vegg, sem hægt er að tengja við tölvu.
Fremra herbergi: stærð: 18 fm2 | 8-12 manns við borð. Gólfflötur: 313 x 605 cm. Lofthæð: 330 cm.
Vinsamlegast bókið tíma í afgreiðslu, á netfanginu spongin@borgarbokasafn.is eða í síma 411 6230.
Sýningar- og viðburðahald í Spönginni
Listamenn geta lagt inn umsókn um sýningar eða umsókn um viðburðahald. Hægt er að bóka hér á heimasíðunni eða hlaða niður eyðublaðinu og senda í tölvupósti ásamt fylgigögnum. Sýningarteymi Borgarbókasafnsins fundar reglulega til að fara yfir og svara umsóknum sem berast. Sýningarteymið áskilur sér rétt til að leggja línur og móta sýningarhald Borgarbókasafnsins út frá áherslum í viðburðadagskrá á hverjum tíma og velur úr umsóknum í samræmi við þær.
Í Spönginni er sýningarrýmið Sjónarhóll á neðri hæð en einnig er möguleiki að setja upp minni sýningar á efri hæð og víðar í safninu.
Sjónarhóll
Stærð: U.þ.b. 43 m2
Gólfflötur: 720x600cm. Lofthæð: 265cm. Upphengirennur eru á veggjum við loft.
Salurinn hentar vel fyrir námskeið, fundi og minni viðburði. Í salnum er jafnframt boðið upp á myndlistarsýningar.
Stærð: U.þ.b. 43 m2 | 10-20 manns við borð – „bíó“- uppstilling 40 manns
Tæknibúnaður: Skjávarpi. Hægt að fá lánað hljóðkerfi.
Gólfflötur: 720x600cm. Lofthæð: 265cm
Virka daga, 1/2 dagur: kr. 15.500
Virka daga, heill dagur: kr. 21.000
Laugardagur: kr. 24.000
Kaffi per gest: kr. 300
Sjá yfirlit yfir aðstöðu í menningarhúsum Borgarbókasafnsins.
Kíktu í sýndarheimsókn gegnum Google Maps í 360° myndum.
Myndirnar voru teknar í júní 2019.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri í menningarhúsinu Spönginni, katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is.