Ungmennabækur á ýmsum tungumálum

Allar unglingadeildir Borgarbókasafnsins geyma unglingabækur á íslensku og ensku.

Í Gerðubergi og í Grófinni má finna unglingabækur á fleiri tungumálum. Smelltu eitthvert tungumálanna í listunum hér fyrir neðan til þess að sjá titlana.

Við minnum á að það er alltaf hægt að fá bækur sendar á það bókasafn sem er þér næst. Þetta er gert með því að velja „Taka frá“ á síðu bókarinnar, og velja þitt bókasafn sem afhendingarstað. Starfsfólk bókasafnanna getur líka aðstoðað þig við að panta bækur af öðrum söfnum.

Leitar þú að barnabókum á öðrum tungumálum? Hér má finna lista yfir þær.

Er bókin sem þig langar að lesa ekki til? Sendu okkur endilega innkaupatillögu.