BORGARBÓKASAFNIÐ

Nýlega barst Borgarbókasafninu bókagjöf frá bandaríska rithöfundinum Kris Bryant. Rúnar Logi Ingólfsson verkefnastjóri safnkosts á Borgabókasafni veitti gjöfinni viðtöku. Í tilefni bókargjafarinnar las Kris Bryant fyrir gesti úr verkum sínum í Borgarbókasafninu Grófinni og ræddi um ritunar- og útgáfuferli verkanna.
Skáldsögur Kris Bryant tilheyra bókmenntategund sem nefnast saffísk skáldverk, rómantískar sögur um ástir milli kvenna. Í bókagjöfinni er að finna verk eftir Kris Bryant (sem einnig skrifar undir höfundanafninu Brit Ryder) auk tveggja verka eftir annan saffískan höfunda, Krystinu Rivers. Bækurnar hafa nú verið skráðar í bókakost safnsins og eru til útláns á Borgarbókasafninu í Grófinni en einnig er hægt að panta og sækja þær í önnur söfn Borgarbókasafnsins.
Hér fyrir neðan má finna yfirlit yfir bækurnar. Ef smellt er á bókina er hægt að taka hana frá og sækja í næsta bókasafn.