BORGARBÓKASAFNIÐ

Blindhæð er verkefni unnið í samstarfi við listræna stjórnandann Daríu Sól Andrews. Sýningin dreifist milli fjölmargra staðsetninga bókasafnsins í borginni. Sýningin opnar þann 13. mars 2021, samfara Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti, og stendur yfir í einn mánuð. Á sýningartímanum er boðið upp á fjölbreytta dagskrá, s.s. listamannaspjall, opnar umræður, smiðjur fyrir börn og kvikmyndasýningar.
"Listaverkin vísa í persónulegar upplifanir listamannanna af rasisma í Evrópu og þá sérstaklega í skandinavísku samhengi. Hér birtist einstök sýn á viðfangsefninu út frá reynsluheimi listafólksins, sem býður áhorfandanum upp á leiðir til að horfast í augu við eigin fordóma frá ólíkum sjónarhornum. Flestir reyna að sneiða hjá samtölum um öráreitni, samfélagslega útskúfun og kerfisbundinn rasisma. Við stillum áleitnum raunveruleikanum upp bak við persónulega blindhæð, sem við forðumst. Staðreyndin er þó sú að kerfisbundinn rasismi er til staðar innan stofnana okkar, hann er hluti af tengslum okkar á milli og birtist í framkomu, stundum óbeint og ómeðvitað. Sýningin, rétt eins og Evrópuvikan gegn kynþáttamisrétti, er tækifæri fyrir okkur sem samfélag til að koma saman og viðurkenna í hvaða rýmum þörf er á auknum sýnileika og vernd þeirra sem eru ekki hvítir á hörund. Hvernig getum við unnið gegn samfélags- og stofnanagerð sem byggir á rasisma og forréttindastöðu sumra? Hvar eigum við að byrja? Hvernig er hægt að kalla fólk til ábyrgðar? Nauðsynlegt er að byrja á að viðurkenna vandann og móta skýra stefnu gegn rasisma." Daría Sól Andrews
Listamennirnir Salad Hilowle (SE), Nayab Ikram (FI), Hugo Llanes (IS) og Claire Paugam (IS) sýna ljósmyndir, kvikmyndir og innsetningu tengda persónulegri reynslu af rasisma.
Daría Sól Andrews - Sýningarstjóri
Daría Sól Andrews er sjálfstætt starfandi listrænn stjórnandi and listgagnrýnandi, sem býr og starfar í Reykjavík.
Salad Hilowle - Listamaður
Salad Hilowle er listamaður búsettur í Stokkhólmi, Svíþjóð, og útskrifaðist frá Konunglega sænska listaháskólanum árið 2020. Í verkum sínum vinnur Salad Hilowle með minningar frá barnæsku sinni og stöðu innflytjendasamfélags Sómala, sem hann tvinnar saman við listasögu Svíþjóðar. Verkin vekja áhorfandann til umhugsunar um sjálfsmyndir, minningar, staðsetningar og sýnileika. Fyrri vídeóverk hans eru stuttmyndirnar Erinra, Letters to Sweden og Waryaa. Fínstilltar og ljóðrænar myndir hans hafa verið sýndar víðsvegar um heiminn og unnið til verðlauna í Svíþjóð. Árið 2015 var hann annar tveggja listamanna til að hljóta Engmansstipendiet, einn af stærstu listamannastyrkjum í Svíþjóð. Árið 2020 hlaut hann Bernadotte Scholarship frá Konunglega sænska listaháskólanum fyrir að auka sýnileika fólks af afrískum uppruna í sænskri listasögu.
Nayab Ikram - Listamaður
Nayab Ikram er ljósmyndari, myndlistamaður og listrænn stjórnandi. Hún er af pakistönskum ættum, fædd á Álandseyjum og starfar í Turku. Hún vinnur með hugmyndir og tilfinningar sem tengjast þeirri stöðu að vera á milli (e. in-betweenship) og sjálfsmyndum í menningarlegu og stafrænu samhengi. Hún notast við tákn, hefðir og abstrakt form í ljósmyndum, gjörningum og innsetningum. Ikram útskrifaðist 2015 með BA gráðu í menningu og listum frá Novia University of Applied Sciences í Jakobstad, Finnlandi. Með listamanninum Ramina Habibollah starfar hún sem listrænn stjórnandi dúósins in a way. Ikram hefur tekið þátt í fjölda einka- og samsýninga. Hún vann til verðlaunanna Portfolio Review for Young Nordic Photographers á Landskrona Foto Festival 2017. Árið 2019 hlaut hún menningarverðlaun frá Swedish Cultural Foundation í Finnlandi.
Hugo Llanes - Listamaður
Hugo Llanes er útskrifaður með MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Listsköpun Hugo Llanes felur í sér rannsókn á pólitískum og félagslegum sprungum og fagurfræði sem streymir frá þeim. Til verka hans teljast afleiður málverka, staðbundnir gjörningar og innsetningar. Hann lítur til félagslegra kringumstæðna í verkum sínum, eins og flutning fólks milli landa, misbeitingu valds og áhrif nýlenduhyggju á þróun sjálfsmynda og persónusérkenna. Verk hans hvetja áhorfandann til íhugunar sem og þátttöku.
Claire Paugam - Listamaður
Claire Paugam lauk myndlistarnámi við Beaux-Arts de Nantes Métropole, Frakklandi, árið 2014. Hún fluttist til Íslands árið 2015 en þá hóf hún meistaranám við Listaháskóla Íslands. Þaðan útskrifaðist hún með MFA gráðu í myndlist árið 2016. Claire Paugam hlaut Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna árið 2020. Á þeim tíma sem Claire hefur verið búsett á Íslandi hefur hún verið virk í listasenunni. Í myndlistarverkum sínum vinnur hún þverfaglega og sinnir einnig fjölbreyttum verkefnum; svo sem við sýningarstjórnun, sviðshönnun, gerð tónlistarmyndbanda, ljóða og textaverka.
Samfara sýningunni er börnum (8-13 ára) boðið að taka þátt í vinnustofu þar sem skoðaðar eru fyrirframgefnar hugmyndir okkar um söguhetjur. Yrsa Þöll Gylfadóttir leiðir vinnustofuna og býður þátttakendum að spyrja sig af hverju hvítur húðlitur er ráðandi í myndskreytingum barnabóka á Íslandi. Vinnustofan fer fram á fjórum mismunandi staðsetningum Borgarbókasafnsins: Grófinni, Kringlunni, Gerðubergi og Spönginni.
Borgarbókasafnið sækist eftir skapandi samtarfi til að auðga menningardagskrána og kynnast fjölbreyttari nálgunum, sem styðja við framtíðarsýn bókasafnsins sem almenningsrýmis allra.
Frekari upplýsingar
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjórn | Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is
Daría Sól Andrews, sýningarstjórn
daria.andrews9@gmail.com