Anime klúbburinn

Á Borgarbókasafninu Árbæ býður starfsfólk safnsins upp á vettvang fyrir börn til að hittast og tengjast í kringum anime. Klúbburinn er fyrir 10 - 12 ára börn. Þar er spjallað, teiknað, föndrað, spilað, horft og ýmisleg annað brallað sem tengist anime!
Einn föstudag í mánuði frá kl. 15:30 - 17:00
Klúbburinn byrjar 25. september og næstu dagsetningar eru: 23. október, 20. nóvember, 18. desember.
Nánari upplýsingar og skráning:
Hólmfríður Ólöf Ólafsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs - viðburðir
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is