Glæpaganga með Katrínu og Ármanni Jakobsbörnum

Um þennan viðburð

Tími
20:00 - 21:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Fræðsla

Glæpafár á Íslandi | Kvöldganga - Bræður, systur og glæpir

Fimmtudagur 13. júní 2024

Katrín Jakobsdóttir er nú þekktust fyrir önnur störf sín en upphaflega var hún sérfræðingur í sögu og þróun glæpasögunnar, m.a. elstu glæpasögunum sem áttu sér stað á Hótel Borg og Klapparstígnum en einnig sögum Arnaldar Indriðasonar sem komu Norðurmýrinni og Grafarholti rækilega inn í íslenska bókmenntasögu.

Ármann Jakobsson er bróðir hennar og hefur sent frá sér einar sex sögur um glæp, m.a. eina sem er staðsett nálægt Háskólanum og aðra sem gerist einkum á Freydísargötu sem nú er einmitt að verða til á höfuðborgarsvæðinu.

Hversu mikilvægt er borgarlandslagið fyrir sakamálasöguna og hvernig mótast sögur af staðarvalinu?

Gangan hefst við Borgarbókasafnið Grófinni, við Tryggvagötu 15.
Öll hjartanlega velkomin.

Kvöldgangan er hluti af dagskránni Glæpafár á Íslandi í tilefni af 25 ára afmæli Hins íslenska glæpafélags. Gangan heyrir jafnframt undir árlegar Kvöldgöngur í boði Borgarbókasafns Reykjavíkur, Borgarsögusafns Reykjavíkur, Listasafns Reykjavíkur og Bókmenntaborgar Reykjavík UNESCO.

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115

Bækur og annað efni