Sögur - Bókaverðlaun barnanna tilnefningar 2024

Tilnefningar | Sögur - Bókaverðlaun barnanna

Árlega tilnefna börn þær bækur sem þeim þykja skemmtilegastar, áhugaverðastar eða bestar að hvaða ástæðu sem er. Börn af öllu landinu kusu á skóla- og almenningsbókasöfnum og hlutu alls 122 bækur kosningu. Þessi mikla dreifing atkvæða sýnir að börnin vilja breiða og fjölbreytta flóru barnabóka og að hver bók á sinn lesanda. Þann 14. apríl var tilkynnt við hátíðlega athöfn á Borgarbókasafninu hvaða bækur stóðu upp úr, fimm frumsamdar og fimm þýddar barnabækur. 

Eftirfarandi bækur eru tilnefndar til Bókaverðlaun barnanna 2024:

Í flokki íslenskra barnabóka

Alexander Daníel Hermann Dawidsson : bannað að drepa
Höfundur: Gunnar Helgason
Myndir: Rán Flygenring

Bella gella krossari
Höfundur: Gunnar Helgason
Myndir: Rán Flygenring

Lára missir tönn
Höfundur: Birgitta Haukdal
Myndir: Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan

Orri óstöðvandi - jólin eru að koma
Höfundur: Bjarni Fritzson
Myndir: Þorvaldur Sævar Gunnarsson

Salka : hrekkjavakan
Höfundur: Bjarni Fritzson
Myndir: Þorvaldur Sævar Gunnarsson

Í flokki þýddra barnabóka

Bluey :  góða nótt leðurblaka
Höfundur: Rebecca Gerlings
Þýðandi: Andri Karel Ásgeirsson

Dagbók Kidda klaufa : rokkarinn reddar öllu
Höfundur: Jeff Kinney 
Þýðandi: Helgi Jónsson

Hundmann : flóadróttinssaga
Höfundur: Dav Pilkey
Þýðandi: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Mbappé er frábær
Höfundur: Simon Mugford
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson
Myndir: Dan Green

Messi er frábær
Höfundur: Simon Mugford
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson
Myndir: Dan Green

Þessar tíu barnabækur munu keppa svo áfram í kosningu Sagna – verðlaunahátíð barnanna. Kosning Sagna á vef RÚV var opnuð við lok tilnefningarathafarinnar og stendur kosningin til 12. maí.

Tilkynnt verður um úrslit í hátíðardagskrá, Sögur – verðlaunahátíð barnanna sem verður sjónvarpað á RÚV laugardaginn 3. júní.

Flokkur
UppfærtFimmtudagur, 18. apríl, 2024 11:11
Materials