Að lesa fyrir smábarn

Fyrir þau allra yngstu

Það er aldrei of snemmt að byrja að njóta góðra bóka. Bækur með stuttum, einföldum texta og skýrum, fallegum myndum henta vel fyrir þau yngstu.

Bendibækur eru líka mjög góðar til þess að kynna börnin fyrir allskonar dýrum, tækjum, hlutum og tilfinningum sem eflir orðaforðann.

Að syngja, fara með þulur og lesa bækur með grípandi hrynjanda eða rími er líka góð leið til að halda athygli yngstu barnanna. 

Flokkur
UppfærtMiðvikudagur, 20. desember, 2023 15:37
Materials