Information about the event

Time
All day
Price
Free
Exhibitions

Stofan | Furðuverk eða fyrirmyndir?

Tuesday May 14th 2024 - Wednesday May 22nd 2024

Event in English - Share with us your thoughts in the online form here below
Hægt er að deila dæmum í rafrænu formi neðst á þessari síðu

 

Við óskum eftir ykkar hjálp við að finna dæmi úr dægurmenningu þar sem fötlun kemur fyrir með einum eða öðrum hætti, lýsingu á birtingamyndinni og hvernig þú upplifðir það. 

Manst þú eftir kvikmynd, sjónvarpsþætti eða vinsælu lagi þar sem fatlaður einstaklingur kemur fyrir? Hvernig birtist sagan þér - leistu þú á karakter sem fyrirmynd eða var verið að segja sögu furðuverks? Segðu okkur frá því: Þitt innlegg

ÖBÍ réttindasamtök safna dæmum frá almenningi á Borgarbókasafninu í Grófinni. Einnig er hægt að senda inn tillögur rafrænt hér að neðan. Miðvikudaginn 22. maí 2024 verður upplestur í Grófinni - öllum er frjáls að lesa upp dæmin sín af birtingamyndum fötlunar í dægurmenningu.  Hvað myndir þú vilja endurskrifa eða sjá með öðrum hætti? Eða er eitthvað atriði sem þig langar að sjá aftur og aftur og aftur? 

Opnun söfnunar og umræður - 14. maí kl. 17
Opinn mæk - 22. maí kl. 17

Stofan er staðsett á 1. hæð og aðgengi gott fyrir fólk sem notar hjólastóla, einnig er salerni á sömu hæð með aðgengi fyrir fólk sem notar hjólastóla. Beint á móti innganginum eru tvö bílastæði fyrir hreyfihamlaða og einnig eru almenn bílastæði fyrir aftan hús og hjá Listastafni Reykjavíkur, sem er í næsta húsi við okkur. 

Rýmið er hluti af verkefninu Stofunni | A Public Living Room, þar sem ólíkir einstaklingar eða hópar fá frjálsar hendur á safninu til endurskapa valið rými eftir sínu höfði í anda Share the Care

Frekari upplýsingar veitir 
Dögg Sigmarsdóttir 
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka 
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is 

Þitt innlegg / Your Input

 
1 Hefst 2 Lokið

Ef þú vilt lesa upp þitt dæmi 22. maí, bættu þá við nafni og símanúmeri hér fyrir neðan // If you would like to take part in the readings on "Open Mic" on the 22nd of May, then add your name and phone number below