Mömmó

Information about the event

Time
17:30 - 18:30
Price
Free
Target
Adults
Language
Íslenska
Learning
Cafés
Talks & discussions

Leikhúskaffi | Mömmó

Tuesday February 24th 2026

Leikhúskaffið er skemmtilegur viðburður fyrir öll sem hafa áhuga á leikhúsi og hefst á Borgarbókasafninu Kringlunni þar sem leikstjórinn Agnar Jón Egilsson segir frá sýningunni Mömmó, nálgun sinni á verkið og aðferðafræði. Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Nýja svið Borgarleikhússins þar sem leikmyndin verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama.

Leiksýningin Mömmó eftir Paulu Vogel verður frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins þann 13. mars næstkomandi. Paula Vogel er eitt vinsælasta og virtasta leikskáld Bandaríkjanna. Mömmó er nýjasta verk hennar, frá 2024 og var það tilnefnt til allra hugsanlegra leiklistarverðlauna bandaríkjanna á síðasta ári. Leikritið er að hluta til sjálfsævisögulegt en Vogel byggir það á sambandi sínu við móður sína og bróður.

Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna. Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum. Öll eru hjartanlega velkomin!

 

Um sýninguna

Ættmóðirin Phyllis flytur með táningsbörnum sínum, Carl og Mörtu ásamt nokkrum kakkalökkum í nýja íbúð sem vonandi er vistlegri en sú síðasta. Phyllis leggur metnað sinn í að kenna börnunum hvernig þau geti sem best lifað af í hörðum heimi og framfylgir aðferðum sínum af hörku og húmor. Grimm en hlý, óbilgjörn en samkvæm sjálfri sér tekst Phyllis á við raunveruleikann með ginflösku og sígarettur að vopni. En börn verða fullorðin og finna sínar eigin leiðir í lífi sem ber með sér nýjar og óvæntar áskoranir.

Höfundurinn Paula Vogel er Íslendingum að góðu kunn en verk hennar, Ökutímar, sló í gegn hér fyrir nokkrum árum. Hún er eitt vinsælasta og virtasta leikskáld Bandaríkjanna og hefur unnið til óteljandi viðurkenninga – en sagt hefur verið um hana að hún safni verðlaunum eins og svartur sófi safnar ryki.

Viðburðurinn á Facebook.

Heimasíða sýningar.

 

Nánari upplýsingar veita:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204

Hlynur Páll Pálsson
hlynurpall@borgarleikhus.is | 568 5500