Bækurnar Kona og Kjörbúðarkonan

Information about the event

Time
16:30 - 17:30
Price
Free
Target
Adults
Language
Íslenska
Literature
Talks & discussions

Leshringurinn Ýmislegt | Kona og Kjörbúðarkonan

Tuesday April 14th 2026

Hefur þú gaman af lestri skemmtilegra bóka? Þá er þetta eitthvað fyrir þig.

Leshringurinn Ýmislegt hentar öllum þeim sem hafa áhuga á að hitta annað fólk og spjalla um bækur á léttum nótum. Lesa á milli línanna og leyfa sér að láta hugann reika. Lesin er ein bók á mánuði auk einnar smásögu/smáprósa. Bækurnar geta verið af ýmsum toga, eftir íslenska jafnt sem erlenda höfunda.

Hópurinn hittist á þriðjudögum einu sinni í mánuði í Borgarbókasafninu Árbæ kl. 16.30 - 17:30.

Skráning ekki nauðsynleg. Verið velkomin!

 

Leslistinn á vorönn: 

13. janúar
Seint og um síðir, eftir Claire Keegan
Það sem lesið var um jólin  

17. febrúar
Inngangur að efnafræði, eftir Bonnie Garmus

17. mars 
Þegar sannleikurinn sefur, eftir Nönnu Rögnvaldardóttur

14. apríl    
Kona, eftir Annie Ernaux
Kjörbúðarkonan, eftir Sayaka Murata

12. maí   
Snerting, eftir Ólaf Jóhann Ólafsson


Sjá yfirlit yfir leshringi Borgarbókasafnsins

 

Nánari upplýsingar veitir: 

Kristín Guðbrandsdóttir, sérfræðingur 
kristin.gudbrandsdottir@reykjavik.is | 411 6250

Materials