Viltu halda hefðbundin jól, ódýr jól, góðærisjól, frönsk jól eða hollustujól? Hér segir Nanna frá fjölda ólíkra hátíðamálsverða og gefur uppskriftir að aðalréttum, meðlæti og sósum, forréttum og eftirréttum, auk ýmiss konar jólagóðgætis. Viltu þrautreyndar uppskriftir að hefðbundnum jólamat, nýstárlegar útfærslur á gamalkunnum réttum eða eitthvað alveg nýtt og spennandi? Þú finnur það allt í þessari bók, sem prýdd er fjölda glæsilegra ljósmynda sem vekja sanna jólastemningu. (Heimild: Bókatíðindi)