Sumarsmiðja Lagasmíðanámskeið með Andrési
Lagasmíðanámskeið með Andrési Þór Þorvarðarsyni

Information about the event

Time
13:00
Price
Free
Target
Children
Ages
9-12
Language
Íslenska
Children
Music

Vetrarfrí | Lagasmiðja með Andrési

Thursday February 19th 2026 - Friday February 20th 2026

Á lagasmíðanámskeiðinu er markmiðið að búa til eitt lag!
Við ætlum að byrja frá hugmynd og læra að stækka hana og gera að fullgerðu lagi.
Þetta er frábært tækifæri fyrir öll þau sem hafa áhuga á að semja lag og langar að fá tækifæri til þess að vinna í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi.
Notast verður við hljóðforritin Ableton Live og Logic.  

Andrés Þór Þorvarðarson er tónlistarmaður og kennari fæddur árið 1996.
Hann kláraði tónsmíðar frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og er núna í MA í Listkennslufræðum í Listaháskóla Íslands. Hann hefur mikla reynslu af lagasmíðum og hefur verið í hljómsveitum á borð við Milkhouse, We are not romantic, Skoffín og spilað inná lög með K.óla og Önnulísu. Þá hefur hann samið tónlist fyrir leiksýningarnar Pabbastrákar og Hvað ef sósan klikkar.

Aldur:  Börn fædd 2016, 2015, 2014, 2013 og 2012
Tími: Smiðjan stendur yfir í tvo daga 19. – 20. febrúar kl.13:00 – 15:00 

Skráning hefst 10. febrúar kl. 13 á sumar.vala.is

Viðburður á Facebook.
 

Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri 

gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is