Um þennan viðburð
Söguhringur kvenna | Hátíð í Heiðmörk
Lokahóf Söguhrings kvenna
Komdu og vertu með okkur á skemmtilegum degi utandyra til að fagna sumri og lok tímabilsins fyrir Söguhring kvenna. Við munum taka rútu í Heiðmörk þar sem okkur verður gefinn sá heiður að gróðursetja nokkur tré fyrir Borgarbókasafnið. Eftir það munum við njóta þessa yndislega staðar með gómsætum veitingum og KUBB-leik.
Allar konur og börn þeirra eru velkomin.
Rúta fer frá BSÍ klukkan 13, sunnudaginn 21. júní. Takmarkaður fjöldi sæta eru í rútunni og þarf því að skrá sig á viðburðinn.
Vinsamlegast skráið ykkur til að taka þátt í þessum spennandi viðburði á skra@womeniniceland.is.
GAMAN SAMAN!
#### Ef veðrið leyfir ekki skemmtun utandyra á lengsta degi ársins, þá er áætlun B að hittast klukkan 13.30 á Borgarbókasafninu, Tryggvagötu 15 í skemmtun og leiki. Tilkynning um breytingar mun birtast á laugardaginn 20. júni 2020.
Nánari upplýsingar veita:
Shelagh Smith hjá Samtökum kvenna af erlendum uppruna
shelagh@simnet.is
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is