Myndlistarkona Victoria Björk
Listagarðssmiðja

Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Ungmenni
Ungmenni

Sumarsmiðja | Græna listasmiðjan fyrir 13-16 ára

Mánudagur 20. júní 2022 - Fimmtudagur 23. júní 2022

Skráning er hafin á sumar.vala.is.
Finnið bókasafnið með því að velja „starfsstað“.

Staðsetning: Okið

Í smiðjunni vinnum við með alls konar efni sem finna má í nánasta umhverfi og umbreytum þeim í listaverk undir leiðsögn Victoriu Björk. Við munum einnig endurhugsa rými OKsins með það að markmiði að gera það “grænna” og listvænt. Í lokin breytum við rýminu í listgarð með listaverkunum sem verða til í smiðjunni.

Smiðjan er kennd á íslensku, ensku og pólsku.

 Victoria Björk er myndlistarkona og er með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskola Íslands. Lukas Gregor Bury er sérfræðingur ungmennastarfsins og OKsins í Borgarbókasafninu.

Sjá viðburð á Facebook hér.

Nánari upplýsingar veitir:
Lukas Gregor Bury, sérfræðingur
lukas.gregor.bury@reykjavik.is | 411 6187