Um þennan viðburð

Tími
13:00
Verð
Frítt
Hópur
Ungmenni
Ungmenni

Sumarsmiðja 13-16 ára | Hiphop dans

Mánudagur 22. júní 2020 - Föstudagur 26. júní 2020

Borgarbókasafnið og Dansskóli Brynju Péturs taka höndum saman og bjóða upp á orkumikið 5 daga dansnámskeið fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna.
Lærðu grunnspor og hreyfingar í einum vinsælasta dansstíl í heimi, Hiphop- stíllinn hefur haft áhrif á allan skemmtanabransann og áhrif stílsins eru enn leiðandi í tónlistarmyndböndunum til tik tok myndbanda. Hiphop er menning sem verður til í Bronx hverfi New York borgar í byrjun 8. áratugarins, innan menningarinnar eru öflugar sköpunarlindir; tónlist (rapp), dans (break, hiphop,
lite feet), myndlist (graffiti) ofl.
Lærðu hjá besta danskennarateymi á Íslandi innan street dansstílanna. Markmiðið er að fræða, byggja upp öryggi og góða sjálfsmynd í dansi sem smitast út í viðhorf okkar allra til lífsins. Hlökkum til að dansa með ykkur!

Námskeiðið fer fram dagana 22. - 26. júní milli kl. 13-15  í salnum Felli í Gerðubergi. Smiðjan er ókeypis en skráning er nauðsynleg hér fyrir neðan þar sem takmörkuð pláss eru í boði. 
Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreyttar sumarsmiðjur fyrir börn og ungmenni í sumar, sjá nánar hér. 

Smiðjan á Facebook

Frekari upplýsingar veitir: 

Guðrún Baldvinsdóttir
gudrun.baldvinsdottir@reykjavik.is
S: 661-6178