Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Ungmenni
Ungmenni

Sumarsmiðja 12-14 ára | Borðspilagerð FULLBÓKAÐ

Mánudagur 15. júní 2020 - Föstudagur 19. júní 2020

***Fullbókað er í Borðspilasmiðjuna en þið getið skráð ykkur á biðlista með því að senda póst á Guðrúnu Baldvinsdóttur: gudrun.baldvinsdottir@reykjavik.is. ***

Finnst þér gaman að spila? Langar þig að læra að búa til þitt eigið spil?  Á námskeiðinu fá þátttakendur að prófa ýmis borðspil og læra hvað gerir skemmtilegan leik. Út frá því munu þau síðan þróa sín eigin spil. 
Embla Vigfúsdóttir leikjahönnuður mun leiða vinnustofuna en hún hefur lært boðspilahönnun og gefið út eigin spil.

Smiðjan er haldin í OKinu í Gerðubergi, dagana 15.-19. júní kl. 10:00-12:00, ef undanskilinn er 17. júní en þá er lokað á söfnunum. Smiðjan er ókeypis en skráning hér fyrir neðan er nauðsynleg þar sem plássin eru takmörkuð.

Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreyttar sumarsmiðjur fyrir ungmenni á aldrinum 12-16 ára í OKinu í Gerðubergi; dans, spuni, textílnotkun, borðspil og kynfræðsla.
Smiðjurnar fara fram í OKinu þar sem lögð er áhersla á að skapa vettvang fyrir ungmenni til sköpunar, fræðslu, sjálfstæðis og skemmtunar.
Skoða fleiri sumarsmiðjur fyrir  börn og ungmenni

Viðburðurinn á Facebook

Frekari upplýsingar veitir: 

Guðrún Baldvinsdóttir
gudrun.baldvinsdottir@reykjavik.is 
S: 661-6178