Söngstund með Önnu Siggu og Erni
Söngurinn losar um gleðiefni í líkamanum

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 17:45
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tónlist

Syngjum saman | Söngstund

Mánudagur 10. október 2022

Anna Sigríður Helgadóttir söngkona leiðir samsöng við meðleik Arnar Arnarsonar gítarleikara.

Lögin sem sungin eru ættu að vera flestum kunnug og er textanum varpað á skjá svo ekkert ætti að stoppa söngelskandi gesti safnsins. 

Öll velkomin og engrar söngreynslu krafist, hver syngur með sínu nefi og höfum gaman. 

„Það gerist eitthvað við það að syngja. Söngurinn losar um gleðiefni í líkamanum og maður fyllist orku. Það er græðandi að syngja og manni líður vel á eftir,“ sagði Anna Sigríður í viðtali við Jónínu Óskarsdóttur bókavörð sem birtist í Árbæjarblaðinu í september 2021. 

Anna Sigríður stundaði söngnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann í Reykjavík, þaðan sem hún lauk námi við framhaldsdeild árið 1989.  Næstu þrjú árin sótti hún einkatíma hjá Prof. Rina Malatrasi á Ítalíu. Anna Sigríður hefur tekið þátt í margskonar tónlistarflutningi, til að mynda einsöngstónleikum, óperu- og óperettuppfærslum, jazztónleikum og gospeltónleikum. Á árunum 2001 - 2012 starfaði hún sem tónlistarstjóri við Fríkirkjuna þar sem hún stjórnaði kór og söng við athafnir og einnig var hún leiðtogi í barna-og unglingastarfi Árbæjarkirkju um nokkurra ára skeið. Þá hefur Anna Sigríður sungið með sönghópunum Hljómeyki, Emil og Bjargræðiskvartettinum. 

Örn Arnarson er tónlistarstjóri Fríkirkjunnar í Hafnarfirði ásamt því að taka þátt í ýmiskonar tónlistarstarfi. 

Viðburðurinn á facebook

Nánari upplýsingar veitir:

Jónína Óskarsdóttir, sérfræðingur
jonina.oskarsdottir@reykjavik.is | 411 6250