Anna Sigríður Helgadóttir and Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Samsöngur á bókasafninu / Sing-along at the library

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 17:45
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tónlist

Syngjum saman

Mánudagur 8. mars 2021

Það verður sungið af hjartans lyst á bókasafninu á vormánuðum. 

Anna Sigríður Helgadóttir söngkona leiðir samsöng gesta ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur píanóleikara. Sungin verða kunnugleg lög og textablöð verða til taks á staðnum. Verið velkomin á safnið og takið þátt í að syngja í góðum hópi. Allir geta tekið þátt, ungir og gamlir og hver syngur með sínu nefi.

Næsti samsöngur verður mánudaginn 12. apríl kl. 17:00 - 17:45.

Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.

 

Nánari upplýsingar:

Jónína Óskarsdóttir
jonina.oskarsdottir@reykjavik.is | s. 411 6250