Um þennan viðburð
Jazz í hádeginu í STREYMI: Mín uppáhalds lög og standardar
Vinsamlegast athugið að tónleikunum verður streymt 23. október kl. 13. Fylgist með á facebook síðu okkar https://www.facebook.com/Borgarbokasafnid
Á næstu tónleikasyrpu Jazz í hádeginu kemur söngkonan Kristjana Stefánsdóttir fram ásamt Kjartani Valdemarssyni á píanó og Leifi Gunnarssyni á konrabassa og flytur nokkur af sínum uppáhalds lögum.
Kristjana hefur víða komið við á sínum tónlistarferli, starfað sem tónskáld, tónlistarstjóri, raddþjálfari og leikkona svo fátt eitt sé nefnt.
Kristjana hlaut Grímuverðlaunin fyrir tónlist sína í söngleiknum Bláa hnettinum 2017 og sýningin Jesús litli var kosin sýning ársins 2009 en Kristjana var ein af höfundum verksins. Hún er með burtfararpróf frá Söngskóla Reykjavíkur, kennarapróf frá Konunglega listaháskólanum í Den Haag í Hollandi og hefur numið CVT söngfræði hjá Cathrine Sadoline í Kaupmannahöfn.
Kristjana er söngkennari við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands ásamt því að kenna einnig við nýju rytmísku söng- og hljóðfærakennslubraut LHÍ. Hún hefur kennt jazzsöng í tónlistarskóla FÍH/MÍT síðan 2001.
Viðburðurinn á facebook Borgarbókasafnsins
Kristjana Stefánsdóttir - söngur
Kjartan Valdemarsson - píanó
Leifur Gunnarsson - kontrabassi
Leifur Gunnarsson er listrænn stjórnandi Jazz í hádeginu.
Verið öll velkomin – við hlökkum til að sjá ykkur.
Ókeypis aðgangur.
Nánari upplýsingar:
Leifur Gunnarsson
leifurgunnarsson@gmail.com
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | S: 4116122