Samspil, Þórdís og Marilyn

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Sýningar

Sýning | Samspil

Laugardagur 10. desember 2022 - Miðvikudagur 25. janúar 2023

Myndlistarkonurnar og vinkonurnar Þórdís Elín Jóelsdóttir og Marilyn Herdís Mellk eiga margt sameiginlegt, þær voru samtímis í grafíknámi í Myndlista- og handíðaskóla Íslands á sínum tíma og hafa rekið saman vinnustofu og gallerí á Korpúlfsstöðum.

Íslensk náttúra er þeim báðum hugleikin og spilar stóran þátt í myndlist þeirra beggja, þó ólikar séu.  Í verkunum á sýningunni kanna þær samspil manns og náttúru og nota til þess mismunandi tækni í grafík.

Boðið verður upp á leiðsögn og leik með grafík laugardaginn 21. janúar - Sjá viðburð.

Þórdís Elín Jóelsdóttir lauk námi frá grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1988. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hér á landi og erlendis.
Marilyn Herdís Mellk stundaði nám við California College of Arts and Crafts og síðar við grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands, þaðan sem hún lauk námi árið 1987. Hún hefur einnig haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga.

Sýninguna má skoða á opnunartíma safnsins.
 

Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is | 411 6230