Sýningar
Handverkskaffi | Grisjunarviður úr görðum, hráefni í nytjalist
Mánudagur 8. júní 2020
Jón Guðmundsson plöntulífeðlisfræðingur fjallar um við þeirra trjáa sem ræktuð eru í görðum, með tilliti til nýtingar í handverki og nytjalist.
Eiginleikar trjátegunda eru mismunandi og ætlar Jón að útskýra það fyrir gestum. Einnig í hvers konar smíði eða úrskurð þær henta best, hvar bestu bútana er að finna, fyrstu skrefin í nýtingu og svo nefnd dæmi um afurðir.
Erindið er haldið í tengslum við sýningu Félags trérennismiða á Íslandi sem stendur yfir í safninu. Þar gefur á að líta muni sem félagsmenn hafa gert að undanförnu.
Allir eru velkomnir.
Enginn aðgangseyrir.
Nánari upplýsingar veitir:
Jónína Óskarsdóttir
jonina.oskarsdottir@reykjavik.is
411 6250