Um þennan viðburð
FRESTAÐ Jazz í hádeginu í streymi I Djúpir tónar jazzins
Jazz í hádeginu verður streymt á Facebooksíðu Borgarbókasafnsins föstudaginn 20. nóvember n.k.
Þorgrímur Jónsson og Leifur Gunnarsson - Djúpir tónar jazzins
Á næstu tónleikasyrpu Jazz í hádeginu fáum við að njóta hljóðfæraskipunar sem sjaldan heyrist en þá ætla bassaleikararnir Þorgrímur Jónsson og Leifur Gunnarsson að leiða saman hesta sína og flytja gestum nokkra húsganga útsetta fyrir tvo kontrabassa.
Þorgrímur lauk burfararprófi af jassbraut tónlistarskóla FÍH vorið 2001. Hann fór í framhaldsnám í Haag, Hollandi og lauk B.M. gráðu þar 2006. Hann er einn af eftirsóttari meðleikurum um þessar mundir og hefur leikið inn á fjölda hljóðrita. Árið 2017 sendi hann frá sér sólóplötuna Constant Movement sem var valin plata ársins á íslensku tónlistarverðlaununum í flokki jazz og blús.
Leifur Gunnarsson er gestgjafi og húsbassaleikari tónleikaraðarinnar.
Viðburður á facebook
Verið öll velkomin – við hlökkum til að sjá ykkur.
Ókeypis aðgangur.
Nánari upplýsingar:
Leifur Gunnarsson
leifurgunnarsson@gmail.com
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | S: 4116122