Tónlist
Syngjum saman jólalög
Mánudagur 13. desember 2021
Á aðventunni er gott að þenja raddböndin og fá kraft og birtu í sálina.
Anna Sigríður Helgadóttir söngkona leiðir samsöng gesta ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur píanóleikara. Jólalög sem flestir þekkja verða á dagskrá. Textinn verður á skjá svo að ekkert er því til fyrirstöðu að geta tekið undir í söngnum. Verið velkomin ungir sem gamlir og hver syngur með sínu nefi.
Sjá nánari upplýsingar um söngstundirnar í Árbæ sem fara fram einu sinni í mánuði yfir vetrartímann.
Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | s. 411 6250