Um þennan viðburð

Tími
13:30 - 14:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Kaffistundir
Spjall og umræður

Hannyrðastund í Spönginni

Fimmtudagur 2. mars 2023

Ertu með eitthvað á prjónunum? Ertu að hekla fallegt sjal eða sauma út púða?

Á fimmtudögum er hannyrðastund í Spönginni. Öll velkomin, byrjendur og lengra komin, í notalega stund í grænu sófunum á annarri hæð. Við spjöllum um daginn og veginn, fáum okkur kaffi og sinnum handavinnunni í góðum félagsskap. 


Við eigum líka mikið úrval af alls kyns bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim. Hér má finna frekari upplýsingar um hannyrðastundir á safninu og tillögur að lesefni. 

Viðburður á facebook 

 

Nánari upplýsingar: 
spongin@borgarbokasafn.is | 411 6230