Um þennan viðburð
Tími
20:00 - 22:00
Verð
Frítt
Staður
Facebook
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Kaffistundir
Netviðburðir
Netviðburður | Barbaknit - Handverkskaffi
Miðvikudagur 25. nóvember 2020
Hlökkum til að sjá ykkur á handverkskaffi í netheimum.
Viðburðinum verður streymt á Facebook.
www.facebook.com/Borgarbokasafnid/live
Linda Eiríksdóttir, Barbaknit, er mörgum prjónurum kunn. Hún heldur úti skemmtilegu podkasti á Youtube og hefur í áraraðir unnið með hinum litríka prjónahönnuði Stephen West. Linda er snillingur í að velja saman liti og mun hún sýna okkur ýmis prjónaverkefni sem hún hefur unnið að í gegnum tíðina.
Linda hefur komið víða við, tekið þátt í prjónahátíðum erlendis, prjónagraffað heilan strætó og stýrt prufuprjóni fyrir útgáfur á mynstrum og svo mætti lengi telja.
Nánari upplýsingar:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri Borgarbókasafninu Gerðubergi.
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is