Hringborð við prentarann

Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Spjall og umræður

Memmm | Við prentarann

Miðvikudagur 2. mars 2022

Viltu kynnast verkefninu Memmm við prentarann á Borgarbókasafninu, Gerðubergi?

Memmm býður upp á tækifæri fyrir foreldra að hittast, leika, fræðast, og njóta samveru með börnum sínum í notalegu umhverfi í fjölskyldumiðstöðinni í Gerðubergi.

Memmm er stofnað af Lindu Stefánsdóttur hönnuði og Kristínu Stefánsdóttur iðjuþjálfa og fleira góðu fólki sem hefur brennandi áhuga á fjölskylduvænu og skapandi samfélagi. Velkomin í samverustund og leik í notalegu og hvetjandi umhverfi hvar sem við erum.

Við hittumst við prentarann á bókasafninu í Gerðubergi.  Öll velkomin, heitt á könnunni og frítt að prenta.

Viðburður á Facebook.

Facebooksíða Memmm

Frekari upplýsingar veitir:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri, ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is