Biskupsfrúr, Hildur Hákonardóttir
Biskupsfrúr, Hildur Hákonardóttir

Um þennan viðburð

Tími
17:15 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Kaffistundir

Fræðakaffi | Að vera biskupsfrú

Miðvikudagur 12. maí 2021

Hildur Hákonardóttir listakona og rithöfundur segir frá rannsóknum sínum á sögu löngu horfinna biskupsfrúa og fyrirkvenna. Tveggja binda ritverk, Hvað er svona merkilegt við það að vera biskupsfrú? kom út, ekki alls fyrir löngu, hjá bókaútgáfunni Sæmundi og byggir á rannsóknum Hildar á níu biskupsfrúm í Skálholti á árunum 1510-1623. Fáar beinar heimildir eru til um þær sjálfar, en Hildur hefur kafað ofan í texta sem varðveist hafa m.a. um eiginmenn þeirra, feður og syni og fundið þaðr ýmsan fróðleik. Saga kvennanna er dregin fram „úr myrkviði horfinna alda, enda er oftlega fjallað um konur fortíðar nánast eins og um væri að ræða vel þekkta, meinlausa dýrategund sem deilir landinu með körlum.“ (H.H.)

Eftir því sem rannsóknum Hildar vatt fram sóttu konurnar á hana af miklum krafti, vöktu hana á morgnana, settust að í huga hennar og neituðu að láta hana í friði fyrr en hún hefði komið sögu þeirra á blað, en bókin er eins konar samtal þeirra við Hildi. Þungamiðja frásagnanna eru afleiðingar siðaskiptanna og aftöku Jóns Arasonar og sona hans sem í þessari bók birtast sem ribbaldar og yfirgangsmenn.

Fræðakaffið verður tekið upp og notað sem efniviður í hlaðvarpsseríu Borgarbókasafnsins sem ber yfirheitið Lesgleraugun. Í Lesgleraugunum er varpað út upptökum af bókmenntaviðburðum safnsins, sem klipptar eru og skornar sérstaklega fyrir hlaðvarpið. Spennandi umræður um lestur, persónur, sjónarhorn, ævisögur, sannleika og skáldskap – allt sem tengist bókmenntum – með mismunandi lesgleraugum í hvert sinn.

Á kaffistundum Borgarbókasafnsins kennir ýmissa grasa en þar er hægt að fræðast og taka þátt í umræðum um alls konar málefni; bókmenntir, fræði, handverk, ferðalög, heilsu og margt fleira.

Viðburðurinn á Facebook.

Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.

Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen, deildarbókavörður
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is

Bækur og annað efni