Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Föndur

Tilbúningur | Öskjur og hyrnur

Fimmtudagur 13. október 2022

Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín í góðum félagsskap?

Föndrum saman, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.

Í öðrum tilbúningi haustsins ætlum við að nota pappír sem til fellur á bókasafninu og umbreyta honum í öskjur og hyrnur sem tilvalið er að nota undir gjafir eða bara geyma í eitthvað smálegt.  Sæunn Þorsteinsdóttir listakona leiðbeinir.

Tilbúningur í Árbæ er opinn öllum en hentar best börnum eldri en 9 ára og fullorðnum á öllum aldri.

Tilbúningur fer fram í Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar og í Borgarbókasafninu Spöng  annan miðvikudag hvers mánaðar klukkan 17:00.

Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg. 

HÉR má kynna sér dagskrá Tilbúnings í haust...

Viðburðurinn á Facebook


Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur barnastarfs
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250