Minecraft köttur
Minecraft smiðja

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn
Fræðsla

FULLBÓKAÐ Vetrarfrí | Minecraft

Fimmtudagur 23. febrúar 2023

Ertu Minecraft-snillingur eða varstu rétt að byrja?

Starfsmenn Skema í HR mæta með Minecraft smiðju, hönnun & landafræði á Borgarbókasafnið í Árbæ í vetrarfríi grunnskólanna þann 23. febrúar. Á smiðjunni fá iðkendur tækifæri til þess að byggja á sérhönnuðum netþjóni Skema sem er nákvæm eftirlíking af Íslandi. Iðkendur vinna saman í hópum og koma sér saman um byggingu og staðsetningu hennar á Íslandi. 

Markmið smiðjunnar eru að þjálfa teymisvinnu, skipulagningu verkefna, sköpunargáfuna og að auka áhuga á landafræði Íslands.

Námskeið er ókeypis en plássið takmarkað og því er skráning nauðsynleg.

Skráning hefst 10. febrúar.

Viðburðurinn á facebook 

Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411-6255