Gunnar Helgason Leifur Gunnarsson Vetrarfrí Borgarbókasafnið
Gunni Helga og töfrahurðarhljómsveitin í Vetrarfríinu í Borgarbókasafninu

Um þennan viðburð

Tími
13:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn
Tónlist

Vetrarfrí I Gunni Helga og töfrahurðarhljómsveitin

Föstudagur 28. febrúar 2020

Í vetrarfríi Reykjavíkurborgar mun Gunni Helga og töfrahurðarhljómsveitin spila í Kringlunni og Gerðubergi

Föstudaginn 28. febrúar í Borgarbókasafninu Gerðubergi kl. 11.00
Föstudaginn 28. febrúar í Borgarbókasafninu Kringlunni kl. 13.30

Gunnar Helgason, Leifur Gunnarson og félagar bjóða fjölskyldum á frábæra skemmtun í vetrarfríinu. Enginn veit nákvæmlega hvað mun gerast, en fólk er beðið að hafa varann á því uppákoman gæti innihaldið snefilmagn af ótömdum spuna.

Eitthvað alveg svakalega dulafullt gerðist um daginn! Það kom í ljós að í gegnum eina skrýtna hurð kemur af og til furðulegt fólk með enn furðulegri hljóðfæri? Fá krakkarnir kannski að prófa hljóðfærin? Hefur píanóið skroppið saman? Mun einhver bresta í söng? Þetta kemur allt í ljós þegar töfrahurðin opnast.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Ókeypis aðgangur.

​Flytjendur:
​Gunnar Helgason, Leifur Gunnarsson, Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir, Sunna Gunnlaugsdóttir, Rósa Guðrún Sveinsdóttir

Viðburðurinn er styrktur af Tónlistarsjóði

Nánari upplýsingar
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
S: 4116114