Barmmerkjagerð, jólamyndir

Um þennan viðburð

Tími
15:00 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Börn
Ungmenni
Skapandi tækni

Verkstæðin | Fiktdagar | Jólabarmmerki

Fimmtudagur 1. desember 2022

Viltu búa til þitt eigið barmmerki?

Tilvalið fyrir þau sem eiga ekki jólapeysu en langar samt að vera með í jólastemmningunni.

Komdu í heimsókn á verkstæðið í Úlfarsárdal og prófaðu barmmerkjavélina með okkur.
Ekki þarf að eiga bókasafnskort, engrar reynslu krafist og engin skráning, bara mæta.
Börn og fullorðnir velkomin en börn yngri en 8 ára mæti í fylgd með fullorðnum.

Fiktdagar eru á Verkstæðinu í Úlfarsárdal 1. fimmtudag hvers mánaðar milli kl. 15:00-18:00.

Viðburður á Facebook.

 

Nánari upplýsingar:

Sendu tölvupóst á netfangið ulfarsa@borgarbokasafn.is