Föndur
Tilbúningur | Múmínþema
Miðvikudagur 9. nóvember 2022
Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín í góðum félagsskap?
Eigum saman notalega stund, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.
Klúbburinn fer fram í Borgarbókasafninu Spönginni annan miðvikudag hvers mánaðar klukkan 17:00 og í Borgarbókasafninu Árbæ undir leiðsögn Sæunnar Þorsteinsdóttur, annan fimmtudag hvers mánaðar kl. 17:00.
- Ert þú eða þekkir þú múmínaðdáanda sem þig langar að gleðja?
- Komdu þá og búðu til múmíntengt skraut.
- T.d. nælur, segla og lyklakippur.
Aðgangur er ókeypis og engin skráning.
HÉR má skoða dagskrá Tilbúnings í haust...
Nánari upplýsingar veitir:
Sigrún Antonsdóttir, sérfræðingur
sigrun.antonsdottir@reykjavik.is | 411 6230