Sumarsmiðja 9-16 ára | Tónlistarsmiðja Sólheimum FULLBÓKAÐ!
FULLBÓKAÐ!
Hefur þú brennandi áhuga á tónlist? Fimm daga tónlistarsmiðja vikuna 8. til 12. júní kl. 10-12 fyrir byrjendur sem og lengra komna. Ef þú hefur áhuga á textagerð, söng, rappi, hljóðfæraleik eða pródúseringu er þetta smiðja fyrir þig.
Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á að semja tónlist. Ekki er nauðsynlegt að kunna á hljóðfæri og allir á aldrinum 9-16 ára eru velkomnir. Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig hér fyrir neðan.
Meðal annars verður farið yfir:
Textaskrif og innblástur
Hljómaganga
Hvað gerir lög catchy?
Form og uppbyggingu
Pródúseringu
Þátttakendur fá svo að spreyta sig á ýmsum æfingum
Umsjón með smiðjunni hefur Jóhannes Ágúst en hann er nýlega útskrifaður úr B.A. námi í lagaskrifum og pródúseringu við Linnéuniversitet í Svíþjóð og starfar við tónlistargerð á Íslandi.
Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreyttar sumarsmiðjur fyrir börn og ungmenni í sumar, sjá nánar hér.
Fyrir nánari upplýsingar:
Sigrún Jóna Kristjánsdóttir
sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is