Myndbandsgerð með Leu Ævarsdóttur

Um þennan viðburð

Tími
13:30 - 15:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
9-12 ára
Börn
Skapandi tækni

FULLBÓKAÐ! Siljan | myndbandsgerð

Sunnudagur 12. febrúar 2023

Staðsetning: Tónlistar- og myndvinnsluver, 5. hæð

Við bjóðum upp á skemmtilegt námskeið í myndbandsgerð fyrir 9-12 ára með Leu í tengslum við Siljuna, árlega myndbandasamkeppni fyrir 5. – 10. bekk. Þátttakendur búa til stiklu  um barna- eða unglingabók sem hefur komið út á síðustu tveimur árum.

Myndbandakeppnin Siljan er samstarfsverkefni Barnabókaseturs Íslands og Borgarbókasafnsins og er hún haldin á hverju ári. Keppt er í tveimur flokkum, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk. Siljan er opin nemendum í öllum skólum landsins og eru vegleg verðlaun í boði fyrir sigurmyndbandið í hverjum aldursflokki.

Lea Ævarsdóttir er kvikmyndaframleiðandi, handritshöfundur og hátíðarstjóri. Hún útskrifaðist frá New York Film Academy árið 2016 með MFA í sjónvarps-og kvikmyndaframleiðslu. Alla tíð síðan hefur hún verið að framleiða og skrifa handrit og finnst einstaklega gaman að horfa á góða kvikmyndir og þætti. Lea á 2 börn og er mjög mikið fyrir að hreyfa sig í ræktinni og útí í náttúrunni.

Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146